Oft gerist sjaldan, nema stundum

Fluttur...

http://einarkr.wordpress.com/
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Mon, 2 Apr 2007 13:08

Long time no see

Ég ætlaði að skipta um bloggsíðu vegna þess hve þessi hefur verið þung og leiðinleg undanfarið. Ég reyndi að stofna á blogger.com...þar hrundi allt helvítis draslið og ég sat örugglega yfir því í 1 og 1/2 tíma, þá reyndi ég vox.com, það var ágætt fyrir utan það að það var ekki hægt að skrifa neitt inn í það djöfulsinas drasl. Þá var komið að bloggar.is, skráði mig inn með notendanafnið einarkr, setti inn netfang,kennitölu og annað sem beðið var um og ýtti á staðfesta...,,nafnið einarkr er upptekið, veldu annað". OK, ég set bara inn einarkri og ýti á staðfesta, þá fæ ég upp að þetta netfang sé nú þegar í notkun...hjá einarkr, sem er ÉG!!! AAARRRGGGHHH!!! breytti um netfang og ýtti enn einu sinni á staðfesta, þessi kennitala er þegar í notkun...hjá einarkr.Allt saman helvítis dras, held mig við hexia í bili.

Það er orðið allt og langt síðan ég bloggaði eitthvað síðast og ég ætla að reyna að rifja upp eitthvað af því sem mig langaði alltaf að skrifa um en hafði mig aldrei í. Ég reyni að skella þessu inn svona sirka í réttri tímaröð:

  1. Fór og sá Bond í bíó, held að þetta sé bara ein besta Bond mynd sem ég hef nokkurn tíma séð. Daniel Craig er bara eitursvalur Bond og það er varla nokkuð hægt að setja út á hann í þessu hlutverki.
  2. Fór á Lay Low tónleika á Græna Hattinum einhvern tíma fyrir jól og skemmti mér stórkostlega. Ég held að ég geti alveg fullyrt að þessi stelpa sé það langbesta sem hefur komið fyrir íslenskt tónlistarlíf í langan tíma. Eftir tónleikana (sem voru allt of stuttir) fór ég á smá bæjarrölt með Birki og við enduðum á spjalli við Lay Low sjálfa á Kaffi Amor og þar gat ég látið í ljós aðdáun mína:)
  3. Gleðileg jól!
  4. Ógeðslega fór í taugarnar á mér auglýsingin fyrir eitthvað matarboð sem haldið var til styrktar Birgi Leifi golfara, sem var spiluð í útvarpinu í gríð og erg á milli jóla og nýárs. Þar var fólk beðið um að sýna samhug í verki og kaupa sig inn á einhverja átveislu til að styrkja og standa við bakið á þessum eina (ef mér skjátlast ekki) ,,atvinnukylfingi" okkar Íslendinga. Hvers vegna í fjandanum! Þetta er vinnan hans er það ekki? Er það ekki það sem felst í því að vera ,,atvinnukylfingur"! Það er fullt af allskyns söfnunum í gangi í kring um jólin, oftast er þá verið að safna fyrir lífsnauðsynjum fyrir lítil börn í Afríku eða jafnvel fyrir illa staddar fjölskyldur hér á landi. Þess vegna finnst mér það ömurlegt að vera að reyna að nýta sér gjafmildi fólks (sem því miður virðist alltaf vera mest þessar fáu vikur í kring um jólin) til þess að styrkja einhvern golfara sem vinnur við að stunda hobbíið sitt og menn fá milljónir á milljónir ofan fyrir að spila.
  5. Saddam Hussein var tekinn af lífi 30.12., hann var illur maður og átti e.t.v. margt slæmt skilið en það að vera hengdur var ekki eitt af því. Þegar verið var að dæma yfir honum gat maður ekki fundið til nokkurrar samúðar með honum en þegar ég sá myndbandið þar sem hann er leiddur í snöruna sá ég ekki harðstjórann sem hafði drepið fólk í bílförmum, ég sá gamlan, sorgmæddan og hræddan mann sem vissi að hann hefði misst alla stjórn á atburðarrásinni í kring um sig. Ég sá á einhverju moggabloggi setningu sem mér fannst eiga vel við núna, þetta er að mig minnir gamalt japanskt máltæki og það hljómar einhvern veginn svona: ,,Menn fara í stríð með nafn föðurlandsins á vörunum en deyja kallandi á mömmu sína. Ég get ekki séð að nokkuð gott fáist út úr dauðarefsingum, enginn er fær um að dæma hverjir skulu lifa og hverjir deyja.
  6. Gleðilegt nýtt ár! Takk fyrir það gamla!

Þetta er það sem ég man eftir svona í augnablikinu, en það var örugglega margt fleira sem mig langaði til að segja frá (rétt í þessu rifjaðist upp fyrir mér að ég talaði hvorki um afmæli Róberts né Vikings, sleppti jólunum nánast alveg og talaði ekkert um áramótaskaupið). En hvað um það núna ætla ég að reyna að vera duglegri að blogga og segja frá einhverju sniðugu (eða ósniðugu) þegar mér dettur það í hug og hef tíma.

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Thu, 4 Jan 2007 22:45

...og það snjóar og snjóar

Það hefur kyngt niður snjó hérna á Akureyri síðustu 2-3 daga. Það er bara langt síðan maður hefur komist í annan eins snjó og ekkert nema gott um það að segja. Af tilefni þessa drifum við Víkingur okkur út í gær og bjuggum til snjókarl. Samkvæmt aðalsnjókarlagerðarmanni heimilisins heitir hann Brassi, Robbi, Róbert og Víkingur, enn hafa ekki fengist frekari útskýringar á þessum nöfnum. Þegar við vöknuðum í morgun var varla hægt að greina snjókarlinn vegna þess hve mikið hafði snjóða á hann í nótt og það hefur lítið róast í dag. Mér sýndist á veðurfréttunum í gærkvöldi að það eigi að fara að frysta all svakalega næstu daga svo lífi Brassa Robba Róberts Víkings ætti að vera borgið í bili.


 

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Tue, 14 Nov 2006 10:38

Pæling

...ef við erum öll börn Guðs, hvað gerir Jesús svona sérstakan?Undecided
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Wed, 8 Nov 2006 23:09

Sigtið

....er byrjað aftur. Það er sýnt á fimmtudagskvöldum klukkan 21:40....mæli með þessu, jafnvel betri en síðasta þáttaröð. Hér er hægt að sjá nýjasta þáttinn og nokkra eldri. Þættirnir hafa verið tilnefndir til Eddu-verðlauna og hægt er að kjósa hér.
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Tue, 7 Nov 2006 20:13

Auglýsingaviðbjóður

Ég hef í gegnum árin verið mjög duglegur við að láta illa/heimskulega skrifaðar auglýsingar fara í taugarnar á mér. Sú sem hafði setið á toppnum lengi var auglýsing frá Ruby Tuesday þar sem maður sagði með slepjulegri röddu: ,,Hvers vegna ekki að veita þér hamborgara frá Ruby Tuesday...." AAARRRGGHHH!!! Þetta er bara viðbjóður...það talar ENGINN svona. ,,Djöfull er ég svangur maður, best að ég veiti mér pylsu".

Ég hélt virkilega að það yrði kæmi engin auglýsing til með að slá þessa út þar til ég settist fyrir framan sjónvarpið á sunnudagskvöldið. Þá var verið að auglýsa einhver hús í eflaust ágætu hverfi í borg bleytunnar. Nokkrir helstu kostir þessa hverfis voru lesnir upp til þess að reyna að fá fólk til þess að flytja þangað. OK, allt í góðu með það...þangað til það kemur að þessum punkti:

Stutt í allar áttir

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig í ósköpunum þetta getur yfir höfuð verið hægt. Það er enginn fjarlægð í neina átt, ég get snúið mér í 360° á sama punkti (ekki hreyft mig úr stað) og er þá búinn að prófa allar mögulegar áttir. EN ef við gefum okkur það að það sé fjalægð í áttina (veit ekki einu sinni hvernig maður á að orða þetta), væri þá ekki jafnlangt í allar áttir? Það er ekki hægt að segja svona!!! Það er ekkert smá sem þetta pirrar mig. Hversu heimskt og/eða úr sér gengið er þetta fólk sem vinnur á þessum auglýsingastofum?!

 

Jæja, þá er ég búinn að losa mig við þetta, í öðrum fréttum er það helst að ég er kominn í fæðingarorlof hið síðara og verð í því fram í miðjan desember!!

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Wed, 1 Nov 2006 09:06

Ljósmyndir

Fékk slatta af ljósmyndum á geisladiski alla leið frá Danmörku um daginn, þetta eru myndirnar sem hann Einar Logi tók fyrir okkur í kirkjunni á brúðkaupsdaginn. Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir inn á barnalandssíðu strákanna ef einhverjir hafa áhuga á að skoða.
Einar Logi var líka með myndavélina sína á lofti þegar strákarnir steggjuðu mig í sumar og hann nokkrar myndir síðan þá fljóta með. Ég pósta nokkrum myndum hérna inn svo að fólk geti séð hvað ég var látinn gera, þetta var náttúrulega gríðarlega gaman og þakka ég strákunum aftur kærlega fyrir að hafa haft svona mikið fyrir þessi. Einar Logi fær enn og aftur sérstakar þakkir fyrir að nenna að taka allar þessar myndir fyrir mig.




Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Sat, 21 Oct 2006 09:56

Celebration of love!!


/> Ég vil ekki líta út fyrir að vera með fordóma fyrir þroskaheftum en mér fannst þetta bara svo hrikalega fyndið. Hver man ekki eftir hinum stórkostlega Corky?!? P.s hef aldrei sett svona youtube dót inn áður, virðist virka fínt í explorer og stundum í firefox...veit ekki hversvegna
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Tue, 17 Oct 2006 23:11

Mættur aftur

Jæja, svo sem ekki mikið að frétta þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang í Dalsgerði. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að það sé að verða ár síðan Róbert fæddist. Hann er orðinn voðalega stór, farinn að reyna að labba, kominn með þrjár tennur og farinn að reyna að segja ,,datt" þegar hann hendir mjólkurglasinu sínu í gólfið aftur og aftur...við mismikla kátínu annara fjölskyldumeðlima þegar glasið hefur fengið að fjúka niður 20 sinnum. Í dag byrjaði hann svo að klappa.....duglegur strákur. Það virðist vera svo stutt síðan við vorum bara þrjú á Sólvöllum, ég, Rannveig og Víkingur og við bæði í skóla...ótrúlegt!

Rannveig er í verknámi svo að það er nóg að gera hjá okkur þennan stutta tíma sólarhringsins sem við erum saman fjölskyldan. Ég sé þó fram á betri tíma bráðum, ég ætla að taka út meira af fæðingarorlofinu mínu og taka mér frí í nóvember. Ég hef líka verið að skipta aðeins um starfsvettvang í vinnunni er búinn að minnka við mig á fasteignasölunni og hef fært mig meira yfir í Intrum aftur. Þetta er búið að vera fínt enda flestar breytingar af hinu góða.

Ég var að enduruppgötva X-Files þættina, maður er búinn að sjá svona einn og einn á Sirkus upp á síðkastið og það varð til þess að ég fór að leita að þessu á netinu, er búinn að fá nokkra þætti (þökk sé hinu unaðslega TVIX) og þetta er náttúrulega ekkert nema algjör snilld. Ég er ekki frá því að þetta séu bara bestu spennuþættir síðustu aldar! Það sem mér finnst samt magnaðast er það að Gillian Anderson hafi verið kyntákn á þessum tíma í pokabuxum sem girtar eru undir brjóst, með hrikalega ljóta hárgreiðslu og kringlótt gleraugu sem eru svo stór að munnvikin á henni lenda undir þeim þegar hún brosir *lol*.  En svona er þetta víst....

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Mon, 16 Oct 2006 14:22

VaSKur

Nú er mikið rætt um að lækka virðisaukaskatt af matvælum, jafnvel um heil 10% (þ.e. úr 14% í 4% ekki úr fjórtán í 12,6%). Þetta er að sjálfsögðu gert af mikilli og góðri hugsjón, þ.e. að lækka útgjöld hins almenna neytanda. Ég er samt ekkert viss um að þetta komi til með að skila sér beint til mín í auknum sparnaði heldur held ég að þetta verði til þess að seðlaveski kaupmannanna þyngist enn frekar. Það þarf engan snilling til þess að sjá þetta...VSK lækkar en þá hækka kaupmennirnir álagninguna sína á móti svo að verðið haldist svipað (örugglega aðeins lægra svo við fáum öll á tilfinninguna að við séum að græða fullt fullt af peningum með að versla svona obboslega ódýrt) og stinga mismuninum beint í veskið.*angry*

Þetta er allt svakalega vel hugsað náttúrulega og ég væri meira en til í þetta ef það virkaði, ég er bara ekki viss um að svo sé. Ætli málið sé þá bara að fella niður alla tolla og gjöld á vörum (þ.m.t. verndartolla á landbúnaðarvörur) og láta erlenda kjötskrokka (og kamfílóbaktersýkt grænmeti) flæða yfir landið? Það myndi allavegana skapa verðstríð í einhvern tíma....æi ég veit ekkert hvar ég stend í þessu!!:(

Heimilið er allt að færast í eðlilega mynd aftur og það eru kominar upp ljósakrónur í stofunni og tenglar og rofar á veggi. Að sjálfsögðu var ekki til allt sem ég þurfti svo að það varð að panta eitthvað af draslinu að sunnan og þá er ekki hægt að klára þetta fyrr en næstu helgi...ef þetta verður komið. Ég kenni Reykvíkingum um að hafa ekki sent nóg af vörunum norður...helv"#" Reykjavík:D

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Tue, 26 Sep 2006 12:32

Svartur

Við Rannveig skelltum okkur í bíó á sunnudagskvöldið og sáum Nacho Libre með Jack Black. Þessi mynd var náttútulega algjör snilld og skemmti ég mér konunglega.....Rannveig sofnaði (hún segir samt að það hafi verið vegna þess að hún hafi verið svo þreytt, ekki að myndin hafi verið leiðinleg). Ég held að Black sé eini gamanleikarinn sem ég get sagt að ég haldi virkilega upp á, það er nánast sama hvað maðurinn gerir, það er fyndið. Ég kynntist honum fyrst þegar ég heyrði diskinn með hljómsveitinni hans, Tenacious D, þeir sem eru ekki búnir að stúdera þann disk ættu að drífa sig og kaupa diskinn (eða sækja hann á annan hátt). Það besta er að við fáum annan skammt af Black bráðlega en núna í vetur kemur út önnur mynd með honum, Tenacious D in the Pick of Destiny. Tenacious D gerði nokkra þætti sem voru sýndir í amerísku sjónvarpi og ef myndin verður eitthvað lík þeim þá verður þetta algjör gargandi snilld. Ég bíð allavegana spenntur...

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Tue, 26 Sep 2006 12:21

Allt að koma

Kláraði að mála alla veggi á föstudeginum fyrir viku, ætla að mála handrið og þess háttar um helgina og þá á bara eftir að hengja upp myndir og spegla...og kaupa og setja upp ljós, rofa og innstungur og þá er þetta komið. Aldrei að vita nema maður hendi inn nokkrum myndum þegar þetta er allt saman frá. Það endaði með því að við máluðum með litum sem heita 1/2 antik og Esja (þessar upplýsingar eru ætlaðar Einari Loga í boði Litalands)
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Fri, 15 Sep 2006 11:38

Breytingar

Miklar breytingar í gangi núna:

1. Hexia menn hafa rekið í gegn einhverjar breytingar á kerfinu hjá sér. Þegar fólk fer inn á einarkr.hexia.net, lendir það inn á kynningarsíðu þar sem hægt er að sjá helstu atriði varðandi mig (sem allir hafa að sjálfsögðu mikinn áhuga á að lesa). Einnig eru þar allra nýjustu bloggfærslurnar, til þess að komast svo inn á bloggsíðuna sjálfa er hægt að smella á link sem heitir go to blog eða eitthvað þess háttar og er hann staðsettur fyrir neðan blogg færslurnar. Einnig er hægt að fara beint inn á einarkr.hexia.net/myblog til þess að komast beint inn á síðuna.

2. Við ákváðum að skella okkur suður síðustu helgi og litum í nokkrar búðir, keyptum föt á strákana, fórum í 7 ára afmæli til frænku Rannveigar og litum í mat til Bjössa bróður. Drifum okkur síðan aftur heim....ekki langt stopp en samt ágætt að komast aðeins suður. Ég er þó ekki mikill aðdáandi borgarinnar og ég er ekki frá því að fólk sé bæði almennt þunglyndara og stressaðra þar en annarsstaðar á landinu.

3. Nú á að fara að ráðast í málningarvinnu heima og verða stofan, stiginn og sjónvarpsholið tekin næst fyrir. Það er ekki alveg komið á hreint hvaða litir verða fyrir valinu en það ræðst vonandi í dag, er búinn að draga heim fullt af prufudósum en við höfum enn ekki fundið liti sem við erum 100% ánægð (og sammála) með.

4. Róbert er byrjaður hjá dagmömmu og stendur sig auðvitað voðalega vel. Hann er hjá sömu dagmömmu og var með Víking á sínum tíma svo þetta er nú aðeins auðveldara í þetta skiptið þar sem maður er ekki að skilja hann eftir hjá nánast ókunnugri konum. Það er alltaf svolítið skrýtið að senda barnið sitt í pössun á hverjum einasta morgni en það er víst bara eitthvað sem maður verður að sætta sig við. Okkur Rannveigu er mikið farið að hlakka til næsta vors þegar hún útskrifast en þá ætlar hún að taka sér frí og vera heima með strákunum í a.m.k ár áður en hún fer að vinna.

5. Það hefur ekki verið mikið um bloggfærslur núna í sumar og aðsóknin að henni hefur minnkað samfara því. Ég ætla nú að reyna að vera duglegri við þetta núna þegar það er farið að hausta og það er ekki eins freistandi að stökkva út og liggja í leti. Mér sýnist ég ekki hafa verið einn um að leggjast í eitthvað bloggleysi í sumar, bloggrúnturinn minn sem tók nú bara þónokkurn tíma að fara í gegnum síðast vetur er orðinn ískyggilega stuttur, það er bara ekkert að gerast á þessum síðum! FARIÐ NÚ AÐ TAKA YKKUR Á GOTT FÓLK!! 

Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Fri, 1 Sep 2006 11:29

Magni arfaslakur?

Magni ,,okkar" Ásgeirsson hlýtur að hafa verið laaaaang lélegastur allra á síðustu tónleikum í raunveruleikasjónvarpsþáttaröðinni (langt orð:o) Rockstar: Supernova...a.m.k. ef það er satt sem þeir segja á síðunni austurlandid.is. Ekki nóg með að hann hafi verið neðstur, næst neðstur eða þarnæst neðstur...hann var í ÞREMUR NEÐSTU SÆTUNUM!

Annars hef ég fylgst vel með þessu þáttum og skanna jafnvel spjallborð endrum og eins til þess að fylgjast með. Ég horfði líka á INXS seríuna og fannst hún góð. Það er náttúrulega enn skemmtilegra að fylgjast með þessu þegar Íslendingur er að keppa og mér finnst Magni komast vel frá þessu bara. Hafði ekki nokkurt álit á honum fyrir þessa keppni en hann hefur heldur betur sannað sig. Þá er bara að vona að hann slútti þessu ,,á móti SS sóldögg" bandi sínu eða hvað sem það heitir og fari að rokka þegar hann snýr aftur.

- ég
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Fri, 25 Aug 2006 09:17

Þá er það frá

Jæja, brúðkaupið búið og ég bara orðinn giftur maður. Ég get ekki sagt að þetta breyti miklu fyrir mig þar sem við höfum nú nánast verið gift síðustu 4 árin eða svo. En þetta var alveg frábær dagur og allir alsælir með þetta. Athöfnin gekk vel, allir sögðu já á réttum stöðum og enginn datt. Það munaði að vísu ekki miklu að Elli stigi á slörið hennar Rannveigar en það slapp fyrir horn. Víkingur var hringaberi og stóð sig alveg eins og hetja (hvað annað?). Ég og Víkingur vorum eins klæddir, í ,,sjakket" og honum fannst ekkert smá gaman að fá að vera svona fínn, við áttum alveg eins von á því að hann myndi ekki endast í þessum fötum en hann fór ekki úr þeim fyrr en hann fór að sofa seint um kvöldið. Róbert fékk svipuð föt og við sem mamma saumaði, hann stóð sig líka vel og ákvað að fá tönn í tilefni dagsins með tilheyrandi hita, gráti og ælu, en það var þó ekki fyrr en um kvöldið. Rannveig var að sjálfsögðu stórglæsileg eins og við var að búast. Eftir athöfnina rúntuðum við aðeins um bæinn og dreyptum á kampavíni á skelltum okkur svo í myndatöku niður í Dagsljós. Það var algjör snilld og ég held að ég hafi bara aldrei skemmt mér jafn vel á svona ljósmyndastofu, enda er það yfirleitt hundleiðinlegt. En hann Finnbogi ljósmyndari er bara svo mikill snillingur að þetta var ekkert mál. Næst var það veisla í Sveinbjarnargerði, þar sem allir átu á sig gat enda dýrindis matur á boðstólnum. Eftir mat, leiki og skemmtiatriði fóru gestirnir að týnast heim nema þeir allra hörðustu sem sátu eftir í gítarpartíi undir stjórn Bjarts og Jóa. Jói og Hildur Jana voru veislustjórar og stóðu sig með stökustu prýði og kunnum við þeim góðar þakkir fyrir. Einar Logi tók líka myndir fyrir okkur í athöfninni og stóð sig vel, ég var svo vondur við hann að ég hringdi í hann um ellefu leytið kvöldið fyrir athöfn og bað hann um að gera þetta fyrir mér. Hann tók að sjálfsögðu vel í það (enda öðlingur mikill http://agent.hexia.net/styles/sites/img/smileys/wink.gif)og smellti af nokkrum römmum. En að öðru....mín ástkæra eiginkona á afmæli í dag og mig langar til þess að nota tækifærið og óska henni til hamingju með það! Þetta hlýtur að vera dálítið mikið álag fyrir hana blessaða, henni fannst hún fullorðnast svo mikið við að gifta sig og svo BAMM!! nokkrum dögum seinna skellur svo á henni annað ár í þokkabót. Jæja, þetta er að verða fínt, þarf að fara að vinna... Over and out Mr Elíasdóttir
- ég
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Wed, 9 Aug 2006 10:04

Teljari

Var að skella inn þessum líka bráðfallega teljara, það verður gaman að sjá hversu margir eru að líta hérna inn reglulega, ég giska á 3. Annars er algjör skandall hvað fólk er lélegt við að skrifa hérna inn, ég er sveittur við að dreifa upplýsingum um hvernig á að gera þetta en enginn nýtir sér það! Svo veit ég ekki betur en að Guðrún sé nýkomin af Hróarskeldu, það væri gaman að fá sögur af því hérna...sástu Guns ´n Roses?
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Fri, 7 Jul 2006 12:06

Mánuður í brúðkaup!

:o

- ég
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Thu, 6 Jul 2006 11:29

Flakkarinn

Ég var farinn að hafa pínu áhyggjur af því að ég geymi allar ljósmyndirnar mínar í tölvunni minni og á ekkert backup svona ef tölvan tæki nú upp á því að hrynja einn daginn. Ég var búinn að skoða venjulega harða diska og svona álbox utan um og ætlaði bara að skella mér á svoleiðis. Þá rakst ég á þessa græju:

Þetta er þvílíka snilldar tækið, ég hleð öllum myndunum mínum inn á þetta, mp3 og videóum (nánast sama hvaða format það er), tengi þetta við sjónvarpið og volá...ég þarf aldrei að skipta um diska þegar ég er að sofna fyrir framan sjónvarpið á kvöldin. Þetta nýtist svo líka sem venjulegur flakkari. Það er meira að segja hægt að kópera DVD diska beint inn á þetta, maður þarf ekki að hafa áhyggjur af því að breyta því í eitthvað lesanleg form. Ég skellti mér á eitt svona kvikindi áðan og lét setja í það 320 GB disk*cool*. Mesta snilldin er samt að ég hefði getað keypt þennan disk og venjulega hirslu utan um hann og borgað örfáum þúsundköllum minna. Svo má ekki gleyma því að þetta er nýjasta týpan, ég ætlaði að taka aðeins eldri týpu af því að hún var alveg nóg fyrir mig og var slatta ódýrari en gaurinn lét mig fá þennan á sama pening og gamli átti að kosta. Þetta er greinilega gríðarvinsælt það komu tveir gaurar inn á meðan ég var að bíða eftir spilaranum mínum og keyptu sér alveg eins....bara 45 mínútur í að ég komist heim að prófa!!!

- ég
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Thu, 29 Jun 2006 16:16

2,5 áfengisverslanir á hvern íbúa bæjarfélagsins!

Þetta finnst mér nokkuð merkilegt, fjórar verslanir sem selja áfengi í 10 manna ,bæjarfélagi"....spurning hvort mbl menn séu bara að klúðra málunum enn einu sinni. Það virðast ekki vera gerðar miklar kröfur til starfsmanna sem eru ráðnir til þess að skrifa fréttir á þessu stærstu og öflugustu fréttavefsíðu Íslendinga.

- ég
edit: Vísir lumaði á einni góðri fyrirsögn í dag *embarrased*
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Wed, 28 Jun 2006 14:40

Operator, give me the number for 911!!!

Þetta finnst mér óhemju sniðug mynd :D

Hversu utan við sig geta þessir gaurar verið?!?

- ég
Einar Kristinsson
Said Einar Kristinsson
Wed, 28 Jun 2006 12:30

first << prev | Pages : 1 2 3 | next >> last